Jöklum er skipt í tvo flokka, hjarnjökla sem einkenna heimskautasvæðin, og skriðjökla. Jökulrof er það rofafl sem skriðjöklar framkvæma. Skriðjöklar eru stórvirkastir allra rofvalda á landi og merki um jökulrof sjást víða á Íslandi. Áhrif jöklanna við mótun landslags hafa verið tvíþætt. Jökulrof sem slípar berggrunninn og rýfur hann og hins vegar leiða eldgos undir jökli til háreystra móbergsfjalla sem setja sterkan svip á gosbelti landsins.