Veðrun og rof
Þegar verið er að tala um veðrun er átt við það afl sem mylur berg niður á einum stað. Þegar bergið hefur molnað þ.e. veðrast þá taka við önnu öfl sem kallast roföfl.
|
Þegar roföflin, eins og vindur, vatn og jöklar taka við veðraða efninu og flytja það frá upprunastaðnum að t.d. stöðuvötum, sjó eða dældum, hleðst það upp í setlög og með tímanum myndast setberg. Ef roföflin myndu ekki virka þá mundi allt veðraða efnið hlaðast upp þar sem það brotnar niður.
|