Flestir Íslendingar eru meðvitaðir um áhrif uppblásturs á jarðvegi sem er vegna þess að skógur hefur horfið af stórum hluta landsins. Uppblástur hefst við bakka farvega sem myndast hafa við úrfelli eða snjóleysingar. Þegar fólk hefur tekið sér það bessaleyfi að keyra stórum jeppum sínum utan vegar skilur það eftir sig sár í jarðveginum. Þetta sár stækkar og veldur uppblæstri með vindrofi. Oft er talað um að landið sé að fjúka burt með slíkum eyðileggingum. Vindur getur einnig sorfið berg eða gróður þegar hann ber með sér bergmylsnu, en bergmylsnan virkar eins og sandpappír á umhverfið.